Við Ólöf sáum mynd á netinu um daginn af regnbogaköku. Síðan þá hefur hún beðið mig ótal sinnum að baka svona köku. Í tilefni af fyrsta degi sumarfrísins hjá mér lét ég undan í dag. Morguninn fór í ýmsar útréttingar en um hádegi var kominn tími til að baka. Ég notaði uppskrift sem ég fékk frá mömmu fyrir örugglega 20 árum en hafði aldrei prófað.
Uppskriftin heitir glasabotnar vegna þess að hráefnið er mælt í glösum. Í fyrsta glasi eru 3 egg, í öðru glasi er sykur jafnhátt eggjunum og í þriðja glasið fer 1 msk kartöflumjöl, 2 tsk lyftiduft og hveiti þar til hráefnið er komið jafnhátt og í hinum glösunum. Eggin og sykurinn eru þeytt vel, á mesta hraða í 2-3 mínútur. Hveitiglasinu er síðan blandað varlega saman við með sleif.
Allir matarlitir heimilisins voru dregnir fram. Það er greinilegt að ég þarf að fara að fylla á hjá mér, a.m.k. áður en piparkökumálun verður næst á dagskrá.
Á meðan ég var að stússast í kökudeiginu var Tinni mjög hljóður ... og það veit aldrei á gott. Enda sá ég útundan mér að hann hafði greinilega komist inn í herbergi heimasætunnar og rótað í óhreinatauskörfunni hennar. Það bregst ekki þegar hann kemst í körfuna þá rænir hann g-streng!
Stelpurnar hjálpuðu til við að hræra matarlitnum við deigið. Úr einni tveggja botna uppskrift fengum við 3 þunna botna. Við gerðum tvær uppskriftir og fengum því 6 þunna botna í 6 litum.
Það er gott að nota vel af matarlit, þá verða botnarnir skærari á litinn. Þessi uppskrift þarf að bakast við 200°C í 12 mínútur.
Fyrstu 3 botnarnir voru ofbakaðir hjá mér en seinni 3 voru í lagi. Í uppskriftinni stóð nefnilega að það ætti að baka þá í 30-40 mínútur, en þá er auðvitað meira deig í hverjum botni. 12 mínútur reyndist alveg hæfilegt fyrir þunnu botnana.
Kakan varð nú ekki alveg sú fallegasta í laginu en það má segja að tilraunin hafi heppnast að mestu leiti. Ólöf og Ásta voru alla vega spenntar að fá að skera fyrstu sneiðina en að sjálfsögðu fengu allir brauð fyrst.
Við buðum Guðnýju í kaffi, skömmu seinna kom svo Guðrún María og feðgarnir fengu heimsendingu vegna veikinda. Mér fannst fullmikið krem á kökunni en samt reyndi ég að smyrja mjög þunnu lagi á milli botnanna. Ég notaði hvítt Betty Crocker krem, en kannski er betra að vera með aðeins bragðminna krem. Skemmtileg tilraun og góður fyrsti í sumarfríi.








2 ummæli:
jiiii þú toppar nú alla hluti!
hehe - girnileg kaka :)
litli Tinni er bara alltaf jafn sætur
síjú
Skrifa ummæli