12. júlí 2011

handavinna síðustu vikna

Þetta eru dósir undan ananas sem ég opna með Tupperware dósaopnaranum mínum þannig að engar skarpar brúnir myndast. Síðan geri ég einhverja sæta miða í Photoshop, prenta út og lími á dósirnar. Þessar ætla ég að nota á kennaraborðið mitt næsta vetur. Ég ætla líka að gera háar fyrir blýanta, tréliti og penna.

Þessa hugmynd fékk ég einhvers staðar á Pinterest fyrir nokkrum vikum og svo gerjaðist hún í kollinum á mér þangað til ég framkvæmdi hana fyrir nokkrum dögum. Þessi poki geymir Bamboo teikniborðið mitt og ég er að spá í að gera annan fljótlega. Mig langaði nefnilega að gera einn með eiturgrænu fóðri en það var ekki til þegar ég keypti þetta.
Svo kláraði ég þetta nálaveski nýlega en ég byrjaði á því fyrir svona 2-3 árum (eða kannski er lengra síðan). Það tók nú ekki nema svona 2-3 klukkutíma að klára útsauminn sem ég átti eftir og setja það saman. Furðulegt hvað maður frestar hlutum sem tekur enga stund að klára.

Græna púðaborðið prjónaði ég fyrr í vetur, sennilega í kringum áramótin og var aldrei búin að setja bak og fyllingu. Kom mér loksins í það eitt kvöldið, tók svona 30-40 mínútur. Stóri púðinn er líka eitt verkefni sem ég ákvað að framkvæma í maí, keypti allt í þetta, fyllinguna og efnið utan um en svo lá þetta bara í stól í holinu þar til eitt kvöld seinnipart júní. Þá tók ég af skarið saumaði utan um púðana (þeir eru tveir). Þetta tók svona klukkutíma í mesta lagi.
Það sést að hér er að myndast mynstur ... ég er að vinna að svona mission impossible, þ.e. að klára allt þetta hálfkláraða sem ég á. Næsta verkefni (og ég er byrjuð!!!) er að sauma bak á bútasaumsframhlið sem ég gerði sennilega árið 2002 eða 2003. Ég er búin að sníða næstum allt efnið í bakið og er að þróa hvernig það á að líta út í huganum. Markmiðið er að reyna að nota bara það sem ég á (eða systir mín) til að klára, kaupa ekkert í viðbót. Ég á nefnilega mjög mikið af efnum í kössum sem taka mikið pláss, ég væri nú alveg til að rýmka aðeins til í saumaherberginu (sem er líka tölvuherbergi/geymsla/föndurherbergi og almennur ruslahaugur).

Engin ummæli:

Related Posts with Thumbnails