Fyrsta lautarferð sumarsins var farin í síðustu viku. Við völdum einn af fallegri sumardögunum hingað til og héldum af stað yfir í næsta sveitarfélag eða Hlíðargarð í Kópavogi. Garðurinn var nú ekki eins huggulegur og mig minnti (engin blóm neins staðar) en þarna voru góðar grasflatir og auðvitað dásamlegt veður. Við vorum auðvitað vel búin nesti og teppum og lágum og kjöftuðum í tæpa tvo tíma.
Við hjónin erum búin að standa í skógarhöggi í litla garðinum okkar núna tvær helgar í röð. Það sem sést hér á myndinni er bara seinni helmingurinn. Hjónin á bakvið voru alveg til í að uppræta þennan ljóta Alaskavíði sem var settur niður að okkur forspurðum fyrir rúmum 10 árum og hefur farið í taugarnar á mér alveg síðan. Ég var því mjög fegin þegar nágrannarnir komu og voru til í að fella allt hekkið. Þetta hafði þó óvæntar aukaverkanir því þegar hekkið var farið, sást ófrágengni skúrinn og girðingin allt of vel. Það er því næst á dagskrá að gera eitthvað í því máli sem fyrst.


Engin ummæli:
Skrifa ummæli