- byrjaði á smákökubakstri, tvær sortir
- byrjaði á vettlingum handa Þórunni, út af sottlu
- byrjaði á dagatölunum, fyrir ömmur og afa í jólagjöf
- byrjaði að kaupa jólagjafir, nú er tilbúið það sem þarf að senda út í DK
- byrjaði á jólakortunum, búin með umslögin
Ég fór áðan og ætlaði að kaupa Dextra-pappírinn í Odda (nei afsakið A4) til að prenta dagatölin. Þá var hann auðvitað uppseldur, kemur í lok vikunnar.
Ég fer á morgun í Borgarleikhúsið að horfa á úrslitin í Skrekk, Þórunn tekur þátt. Svo er bekkjarkvöld hjá Ólöfu á miðvikudaginn. Guðný, Guðrún María, Þórunn og ég förum á tveggja daga tálgunámskeið um helgina. Við Siggi förum á tónleika með Hannesi og Gull á laugardaginn (Kim Larsen). Svo er það auðvitað Köben eftir örfáa daga.
4 ummæli:
oooohhhh mér finnst þú svo dugleg - megaknús frá mér til þín :)
hvernig var svo kimmi larsen?
Æði, en það var svo skrítið, ég skildi ekki alveg hvað hann sagði milli laga. Samt talaði hann hæææggttt og skkírrrtttt.
En ég náði nokkrum bröndurum. Og lögin voru góð, hann er algjör rokkari, miklu meira en ég hélt.
Jóhanna!!!! Comment handa þér hjá Elínu!!!! OMG! Gína!!!!
Viltu fleiri upphrópunarmerki?!?!?!?!?!?
Skrifa ummæli