6. nóvember 2007

Kæri Jóli ...

Dagur 4

4. Starfsfólk sem býr að reynslu úr sambærilegum störfum úr öðrum sveitarfélögum eða ríki mun frá og með 1.nóvember fá þá reynslu metna inn í kjör sín hjá Reykjavíkurborg.

Ég er nú svo fáfróð, hefur þetta ekki verið metið hingað til? Hefur starfsfólk, t.d. kennarar sem færa sig á milli sveitarfélaga þurft að byrja á núlli hvað starfsaldur varðar?

En ef maður færir sig á milli starfa innan Reykjavíkur fer t.d. af leikskóla yfir í grunnskóla, er það metið? Hefur það verið metið hingað til? Ef svo er hefur vantað tvö ár á minn kennsluferil í 10 ár.

Þetta er svona atriði sem lítur vel út á pappír en afskaplega fáir geta notfært sér.

Eftir því sem ég fer betur ofan í þetta "tilboð" verð ég alltaf svekktari og svekktari og samt gerði ég mér engar vonir um neitt fyrirfram. Það er eins gott að launanefnd sveitarfélaga taki almennilega á málum þegar samningaumleitanir byrja nú eftir áramót því það er ekki margt sem heldur venjulegum kennurum á besta aldri eins og mér í starfi ef það verða ekki verulegar launahækkanir. Launahækkanir eru nefnilega það eina sem verður til þess "að gera störf innan borgarinnar samkeppnishæfari og starfsandann betri".

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gott að finna einhvern sem er að hugsa það sama.
kv

Nafnlaus sagði...

eins og talað úr mínum eigin ;)

Related Posts with Thumbnails