4. nóvember 2007

Kæri Jóli ...

Dagur 2

2. Tvö hundruð milljónum verður ráðstafað í sérstakan "pott" sem stjórnendur þeirra stofnana sem glíma við manneklu geta notað til þess að umbuna starfsfólki sínu vegna margs konar álags eða til að bæta starfsanda á annan hátt.

"Stjórnendur þeirra stofnana sem glíma við manneklu ...?" Hvaða stofnanir ætli það séu? Ætli það sé mín stofnun, þar sem tveir sérkennarar af þremur hafa hætt nú í haust og það á ekki að ráða í staðinn fyrir þá vegna þess að við vorum með "of mikla" sérkennslu í fyrra. Hvernig er hægt að vera með of mikla sérkennslu, við erum bara með of mörg börn sem þurfa á mikilli aðstoð að halda, eigum við að henda þeim út úr skólanum núna?

Eða er mannekla hjá okkur þar sem flestir voru settir í meiri kennslu en þeir báðu um vegna þess að ekki fengust fleiri kennarar til starfa?

Hvað eru 200 milljónir fyrir margar stofnanir? Í Reykjavík eru um 43 grunnskólar, tæplega 100 leikskólar ef ég man rétt og eru ekki stofnanir fyrir eldri borgara inn í þessum pakka líka?

200.000.000 / 150 stofnanir = 1.300.000. Ætli þetta sé á mánuði? Nei, nei, þvílík bjartsýni, þetta er fyrir þetta ár og það næsta, 14 mánuði. Það er sem sagt um 100.000 kr á mánuði sem hver skólastjóri hefur til að umbuna öllu sínu starfsfóli á mánuði, hjá okkur eru um 50 starfsmenn sem þýðir 2000 kr á mann á mánuði ef þessu yrði dreift jafnt á alla.

Ég bíð spennt eftir að sjá hvernig þessi klausa kemur út í reynd.
Takk fyrir þetta borgarstjóri, þú ert æði!

Engin ummæli:

Related Posts with Thumbnails