Ég fór út að ganga "með hundinn" áðan. Þetta er fjórði dagurinn í röð sem ég dríf mig út í göngutúr eftir vinnu. Ég er sko að æfa mig. Veðrið var frábært, alveg logn og hríðarmugga. Það hlaut að koma að því að við fengjum snjó hér í höfuðborginni. Ég vona bara að það verði ekki ófært þegar SPK fer í bústaðinn eftir nokkra daga.
Við ætlum að skoða hvolpinn "okkar" um helgina og eins að heimsækja litlu fjölskylduna, sem er ekki svo lítil lengur, fyrir austan fjall.
Á mánudagskvöld kl. 20 verður svo opnunin á Fókussýningunni Veður í Fókus í Norræna húsinu. Allir velkomnir.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli