Myndirnar eru frá Söru hvolpamömmu á Selfossi.
Við getum farið og skoðað um næstu helgi þá eru þeir orðnir 3 vikna þessar dúllur.
Vetrarfríið hefur verið notað til að taka til og breyta hér heima. Sjónvarpssófinn var orðinn of lítill fyrir okkur þrjár mæðgur, hvað þá þegar hundurinn kemur líka. Siggi er auðvitað alltaf eins og kóngur í ríki sínu með sinn eigin stól. Þannig að ég ákvað að færa sjónvarpið inn í stofu og nota stofusófana. Nú þarf ég bara að losna við græna sófann og klára að raða upp og gera fínt.
Þegar ég var að færa sjónvarpsborðið í gær (það er á hjólum en níðþungt) fór gúmmíið af einu dekkinu og gerði djúpan skurð í parketið (þetta er sko mjög langt frá því að vera rispa!). Ég ætla að athuga hvort Hjalli hennar Svölu hefur ekki eitthvert súpergott ráð við svona hörmungum.
2 ummæli:
jiiih hvað ég er ánægð að það eru fleiri en ég að gera gloríur í stofunni - hefði nú samt ábyggilega verið auðveldara að eiga við trönuberjavodka og glerbrot en djúpa rispu....
Avatar er klárlega krúttið :)
Bara svona til að leiðrétta allan misskilning, þetta er ekki rispa, þetta er skurður, fór niður úr eikarspóninum (hægt að slipa upp 3-4 sinnum) og niður í spónarplöturnar þar fyrir neðan. Þetta var stórslys!
Já Avatar er soldið krútt, við megum koma og skoða í næstu viku þegar þeir eru 3 vikna.
Skrifa ummæli