15. febrúar 2010

Öskudagsbúningur í höfn

Öskudagsbúningurinn fyrir Ólöfu er tilbúinn. Það gekk nú ekki þrautalaust fyrir sig, ungfrúin hefur nú sínar skoðanir á málunum og var ekki alveg sátt við útfærslu saumakonunnar á outfitti Línu Langsokks, en þetta hafðist að lokum og sú stutta var sátt.

Ég saumaði æpandi bleikar leggings á unglinginn og skott í stíl, en hún ætlar að vera bleiki pardusinn, við eigum bara eftir að hanna eyrun!

2 ummæli:

Róslín Alma sagði...

Sko Ólöfu, bara flott! :D

Nafnlaus sagði...

flott stelpa í flottum búning ;) kv Þuríður Svava

Related Posts with Thumbnails