Ég ætlaði nú ekki að blogga í dag, er nefnilega að losa möppu fyrir bókhaldið 2008. Þá verður mér litið á launaseðil frá 1.07.2005 ... mánaðarlaun 214.469 kr. Nýjasti launaseðillinn hljóðar upp á 218.223. Ég hef semsagt hækkað um 3754 kr á mánuði á þessum 30 mánuðum sem liðnir eru ... váa - ég þarf að hætta að vinna til að eyða öllum þessum peningum!!!
Á þessum júlí 05 seðli er ennþá verið að draga 0,38 % af mánaðarlaununum mínum frá útaf verkfallinu. Þetta staðfestir enn og aftur - ég fer ekki aftur í verkfall - ég hætti bara að kenna og fæ mér launaða vinnu!
Gleði, gleði og vinna á morgun, fundur út af öllu starfsfólkinu í vinnunni minni sem finnst það lagt í einelti. .... Auðvitað, ég er ein af þeim, lögð í einelti af launagreiðandanum mínum.
ps. kláraði að taka úr möppunni, launaseðillinn 1.1.05 var líka upp á 214.469 = 35 mánuðir og hækka um 3754 kr.
1 ummæli:
þú átt alla mína samúð - annað en ég sem er með svo rooooosalega há laun múahahahhahahahhahahha
Skrifa ummæli