12. janúar 2008

Ég á afmæli í dag, ég á afmæli í dag ...

Dagurinn í dag er búinn að vera rólegur og ljúfur eftir svaka partý í gær. Minn elskulegi eiginmaður og mín elskulega systir ákváðu að halda óvænt afmælispartý handa mér og slógu sko rækilega í gegn. Mín var ekki búin að kveikja á fattaranum eftir jólin og var alveg grunlaus þar til 5 mín áður en gestirnir komu, en þá fór Siggi nefnilega að kveikja á kertum ... hmm það gerir hann aldrei!
Í veisluna mættu milli 50 og 60 manns og hér var svaka stuð til kl. 2 í nótt.
Ég fékk fullt af frábærum gjöfum: peninga, gjafakort, nuddgjafabréf, Diesel bodylotion+, leirlist, blóm, partýspil, hálsmen, súpuskál, kampavín ... vona að ég gleymi engu ... er enn að melta þetta allt saman.
Maturinn var frábær, takk Eggert.

Ég er svo rík, að eiga svona margt frábært fólk í kringum mig.

Takk fyrir mig
Í gærmorgun var bekkurinn minn líka með óvænta afmælisveislu fyrir mig, á kennaraborðinu voru 4 kökur og afmælisgjöf handa mér. Þetta var svoooo krúttlegt hjá þeim, stelpurnar höfðu skipt með sér verkum og bakað og svo höfðu þær safnað peningum og farið sjálfar út í Spöng og valið handa mér hálsmen. Þau eru nú algjörar dúllur þessar elskur.

3 ummæli:

Guðný sagði...

Já takk sömuleiðis fyrir frábært kvöld, þetta heppnaðist alveg ótrúlega vel. Ég hafði mestar áhyggjur af því að kjafta af mér en ég er greinilega betri lygari en ég hélt.

Nafnlaus sagði...

he he - takk fyrir mig - hef sjaldan skemmt mér jafn vel hihi - er enn brosandi eftir partýið og dauðfegin að ég var hann EKKI ;)

Nafnlaus sagði...

TAKK TAKK fyrir mig. Þetta var snilldarfjör og mikið gaman. Ótrúlega vel heppnað, spenningurinn var óbærilegur að vita hvernig þér yrði við þegar við birtumst öll. Siggi og Guðný SNILLINGAR þetta var MJÖG GLÆSILEGT og SKEMMTILEGT. Elsku Jóhanna ynnilega til hamingju með afmælið enn og aftur, það er sko rétt hjá þér að þú átt GOTT fólk í kringum þig ;-) Kveðja Stína Run

Related Posts with Thumbnails