18. janúar 2008

Þórunn fermist ...

Þórunn er búin að fara í tvo tíma á námskeiðinu sem Siðmennt heldur fyrir þá sem ætla að fermast borgaralega. Ég var að skoða námsefnið, ég er hrifin. Málefnin sem eru tekin fyrir eru:
  • Gagnrýnin hugsun
  • Unglingar í auglýsinga- og neyslusamfélagi
  • Siðfræði (erfiðar ákvarðanir, réttlæti, mannréttindi, hvað á maður skilið?)
  • Fordómar og fjölmenning
  • Að bera virðingu fyrir umhverfi sínu (m.a. um skemmdarverk á almenningseigum)
  • Um dularfullar gátur lífsins
  • Samskipti unglinga og fullorðinna (hlutverk foreldra)
  • Um hamingjuna og tilgang lífsins
  • Hvað á maður að gera til að þess að lifa góðu lífi?

Aðalkennarinn á námskeiðinu er Jóhann Björnsson, M.A. í heimspeki og kennari.

Þetta lítur alla vega mjög vel út á pappírum og Þórunn er mjög ánægð með þessi tvö skipti sem hún hefur farið.

Mér sýndist vera heiðskýrt í kvöld, ætla að reyna að fara út á eftir og freista þess að ná norðurljósamyndum.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sæl Jóhanna. :)

Þar sem Sunna er einnig í fermingarfræðslu þá las ég með forvitni hvað Siðmennt hefur uppá að bjóða í fermingarfræðslunni. Þetta er allt gott og blessað hjá þeim en illa líst mér á hvernig Siðmennt hefur ráðist gegn Kristna trú og gildi hennar í lífi okkar. Hef ég hlustað á þó nokkra þætti í útvarpinu með viðtölum við forsprakka Siðmenntar og finnst þeir ansi harkalegir í sínum skoðunum. En ef Þórunn er ánægð þá er það fyrir mestu og óska ég henni góðs gengis í fermingarfræðslunni sinni.

Bestu kveðjur til ykkar,
Nína Margrét :)

Nafnlaus sagði...

mér finnst þetta enn fyndið ;)

frugalin sagði...

Já, fyrst var ég smá reið, en núna finnst mér þetta bara fyndið.

Nafnlaus sagði...

Sæl Jóhanna og e.

Það er nú gott að getað skemmt landanum með skemmtilegum commentum :) enda skemmti ég mér konunglega yfir fræðslunni frá Siðmennt. Það er óþarfi að verða smá reið þótt skoðanir okkar eru ekki þær sömu um fermingarfræðslurnar, hvernig væri heimurinn ef allir væru á sama máli? Ansi boring.:þ
Gott að þú ert búin að jafna þig, Jóhanna. :)

Bestu kveðjur til ykkar,
Nína M. :D

Nafnlaus sagði...

til ninu margrétar frá e

það er alltaf gott að hafa skoðanir - sama á hvorri hliðinni maður sefur - siðmennt eða ekki siðmennt er held ég ekki aðalatriðið heldur það að börnunum líði vel með þá ákvörðun sem þau taka eins og þú segir réttilega sjálf í fyrstu athugasemdinni þinni

bestu kveðjur ;)

Related Posts with Thumbnails