Fyrsta ferð ljósmyndaklúbbs Engjaskóla er á morgun. Ég vona að það rigni ekki eldi og brennisteini eins og í Laugavegsferðinni okkar Guðnýjar í dag. Það verður spennandi að sjá hversu margir mæta. Nú ef það verður rigning er ekki annað að gera en taka með sér glæra plastpoka til að setja utan um myndavélina.
Félagslífið fer vel af stað í vinnunni núna þetta haustið eins og venjulega. Haustferðin er ákveðin (mín er í nefndinni) og verður 5. október. Svo er auðvitað ljósmyndaklúbburinn og jafnvel einhver Photoshop hittingur (Ástríður þarf að fara að kenna okkur allt um Orton effect, Lomo og ég veit ekki hvað), og Guðný ætlar að skipuleggja sauma/prjóna/kjaftakvöld, það er nú bara skemmtilegt. Ætli Dagný setji ekki upp spennandi bíóferðir ... o.fl. o.fl. o.fl. Þessi vetur verður fljótur að líða eins og hinir 10 sem ég er búin að vera í kennslu. Vá getur það verið að það séu komin 10 ár síðan ég byrjaði að vinna í Engjaskóla!

Engin ummæli:
Skrifa ummæli