Ólöf hélt bekkjarafmælið sitt í gær. Hér mættu 10 hressar og fjörugar stelpur úr bekknum og Ásta. Þetta var svaka fjör og ég þakkaði fyrir að afmæli koma bara einu sinni á ári. Nú ligg ég uppi í rúmi og hvíli mig, í eldhúsinu er enn allt í drasli eftir gærdaginn en það er svo gott með svona drasl að það fer ekkert þó að maður taki það ekki strax.
Þetta íslenskunám sem við Svala og Gerður erum að byrja í í Háskólanum á nú ekki eftir að láta okkur leiðast, leslistinn er endalaust langur og nýr fyrirlestur sem þarf að hlusta á tvisvar í viku í tölvunni. Fyrsta verkefninu á að skila á fimmtudaginn og sama dag fáum við næsta verkefni. Það fyndnasta er að aðalkennslubókin í þessu íslenskunámi er á ensku!
Nú er fermingarfræðslan að byrja hjá Þórunni. Það er messa bæði í dag og á morgun. Og foreldrar eiga að koma með. Ég er ekki alveg að nenna að fara svona oft í kirkju eins trúlaus og ég er nú.

1 ummæli:
Já hversu fyndið er það að vera með enska bók fyrir íslenskunám :)
Skrifa ummæli