Við vorum með fjölskylduafmæli fyrir stelpurnar í dag. Það heppnaðist vel og stelpurnar fengu fullt af flottum gjöfum. Takk fyrir okkur. Þura og Guðmundur komu með litlu prinsessu, ohh hvað hún er æðisleg, ég missti mig aðeins í að taka myndir af henni.

Spaugstofan var frábær, mér fannst kennarabrandarinn sérstaklega skemmtilegur, lesblindur/lesbískur, hahaha
2 ummæli:
Ólöf þú ert ekkert smá flott svona tannlaus, Jóhann er mjög öfundsjúkur!!
Sæl Jóhanna. :)
Til hamingju með stelpurnar þínar. Það er alltaf jafn spennandi að missa fyrstu tönnina, vonandi hefur Tannálfurinn fært henni eitthvað gott. ;)
Mjög flott heimasíða hjá þér og gaman að skoða muni þína sem þú hefur búið til, þú ert svo dugleg, annað en ég, er alltaf á leiðinni að skapa en gef mér ekki tíma til þess.
Ástandið í 8-O hefur lagast mikið og dömurnar okkar miklu ánægðari með allt þar, skilst mér. Flott hjá Ormari hvernig hann hefur tekið á þessu enda veitti ekki af.
Bestu kveðjur, Nína M :) (mamma Sunnu)
Skrifa ummæli