22. september 2007

Ólöf missir fyrstu tönnina


Ólöf missti fyrstu tönnina sína í kvöld. Tönnin var orðin mjög laus og Siggi rétt kom við hana þá datt hún. Ólöf var mjög ánægð með þetta enda búin að bíða lengi eftir að missa tönn.

Við vorum með fjölskylduafmæli fyrir stelpurnar í dag. Það heppnaðist vel og stelpurnar fengu fullt af flottum gjöfum. Takk fyrir okkur. Þura og Guðmundur komu með litlu prinsessu, ohh hvað hún er æðisleg, ég missti mig aðeins í að taka myndir af henni.



Spaugstofan var frábær, mér fannst kennarabrandarinn sérstaklega skemmtilegur, lesblindur/lesbískur, hahaha

2 ummæli:

Guðný sagði...

Ólöf þú ert ekkert smá flott svona tannlaus, Jóhann er mjög öfundsjúkur!!

Nafnlaus sagði...

Sæl Jóhanna. :)

Til hamingju með stelpurnar þínar. Það er alltaf jafn spennandi að missa fyrstu tönnina, vonandi hefur Tannálfurinn fært henni eitthvað gott. ;)
Mjög flott heimasíða hjá þér og gaman að skoða muni þína sem þú hefur búið til, þú ert svo dugleg, annað en ég, er alltaf á leiðinni að skapa en gef mér ekki tíma til þess.
Ástandið í 8-O hefur lagast mikið og dömurnar okkar miklu ánægðari með allt þar, skilst mér. Flott hjá Ormari hvernig hann hefur tekið á þessu enda veitti ekki af.

Bestu kveðjur, Nína M :) (mamma Sunnu)

Related Posts with Thumbnails