Ég tók mig til síðasta vinnudaginn og tók til í ljósmyndstúdíóinu sem er beint á móti stofunni minni. Það er skemmst frá því að segja að herbergið stækkaði um helming þegar búið var að sópa gólf, henda drasli, ganga frá dóti og þrífa hillur. Nú vantar bara gott nafn á aðstöðuna og mig langar að hanna logo.
Hér eru 4 hugmyndir til að byrja með - ég hef kallað þessa aðstöðu Studio E hingað til en allar tillögur eru vel þegnar.

1 ummæli:
Sæl og gleðilega þjóðhátíð. :)
Mér finnst gráa merkið þitt flottast.
Kær kveðja, Nína Margrét :)
Skrifa ummæli