23. mars 2010

Frú Galin er ekki svo galin

Nú stendur yfir "hreiðurgerð" áður en strákurinn Tinni kemur til okkar. Við erum búin að breyta í stofunni og holinu, að vísu gekk það ekki stórslysalaust, það stórsér á parketinu eftir brussuganginn í mér.
Næsta mál var svo að kaupa bæli fyrir hvolpinn. Ég fór í leiðangur í dag að skoða hundabæli í RL, IKEA og Garðheimum. Fann ekkert sem ég gat hugsað mér að hafa inni hjá mér, Það sem var til í RL kostaði 3000 kr og var algjört rusl. En í IKEA fann ég tvo gardínuvængi í pakka á tilboði á 1190 kr, sennilega svona 6 m af flottu gæðaefni. Ég ætla að nota það til að gera koddaver utan um gamlan kodda og nota það sem hundabæli fyrir Tinna minn. Síðan ætla ég að nota sama efni til að sauma nýjar pullur á ruggustólinn, sko eftir að ég mála hann hvítan og lími hann upp.
Þá er bara eftir að kaupa grind fyrir hvolpinn svo hann sé öruggur þegar við erum ekki heima. Fer í það í páskafríinu.
 Tinni orðinn rúmlega 6 vikna og bara tæpar 4 vikur þar til við sækjum kappann. Mynd frá Söru.

3 ummæli:

e sagði...

Vona þín vegna að efnið sé ekki hvítt á litinn ;)

frugalin sagði...

Nú?!
Jú auðvitað er það hvítt, en þetta eru margir metrar þannig að ég get skipti oft á koddanum.

e sagði...

hehe - það verður þá skipt einu sinni á dag heima hjá þér - gott að eiga góða þvottavél :)

Related Posts with Thumbnails