Myndaveggurinn áður en hafist var handa við "project restyle". Planið var að búa til ferhyrning í grágrænum lit undir myndirnar, setja hillu yfir ofninn, mála alla rammana hvíta og leynitrikkið ....
Búin að taka alla rammana og þá kom í ljós hvað veggurinn var illa farinn. Það hefur ekki verið málað þarna í 7-8 ár og það kemur mikið ryk út af ofninum en hann er alltaf sjóðheitur enda eini ofninn í holinu.
Búið að taka allar myndirnar úr römmunum, hmmm látið bara eins og þið sjáið ekki rykið.
Að spartla og þrífa vegginn undir málningu.
Byrjuð að mála, nota yfirleitt bara litlu rúlluna í svona smáverk.
Nota alltaf þetta snilldarráð þegar ég mála, þ.e. set málningarbakkann inn í plastpoka, þá þarf ekkert að þvo bakkann á eftir, bara að henda pokanum.
Jæja, það er að komast mynd á þetta smátt og smátt, hillunni stillt upp með bókum til sjá hvernig þetta kemur út. Næsta skref að mála hilluna og síðan rammana.
Málaði hilluna með kalkmálningunni góðu sem ég keypti í fyrrasumar, hún gefur svona gamaldags veðrað útlit.
Hr. Galinn setti hilluna upp í kvöld og ég byrjaði að mála rammana, búin að fara eina umferð á fimm ramma, slatti eftir, þetta gæti tekið tíma.









2 ummæli:
Frábært - en skemmtilegt og fallegur veggurinn. Held ég verði bara að gera mér ferð þarna upp eftir einn daginn og sjá með eigin augum þegar rammarnir eru komnir upp á vegg :)
Takk fyrir prjónakaffismorguninn ;)
Takk sömuleiðis, knús
Skrifa ummæli