18. mars 2011

Massagóð SPK ferð

SPK ferðin góða var farin um síðustu helgi, 13 hressar gellur í frábæru skapi upp í sveit að elta gamla geit. Við elduðum auðvitað geggjaðan mat, og ég bakaði naanbrauðin mín bæði kvöldin.
Þetta var á boðstólum í kaffitímanum, heit eplakaka, ís, nýbakaðar pönnukökur, jarðaber og súkkulaðispænir. Ohhh ég fæ alveg vatn í munninn við tilhugsunina.

En ferðin snerist ekki bara um mat! Við höfðum auðvitað margskonar handavinnu með okkur og unnum samviskusamlega alla helgina. Ég setti t.d. peysuna mína saman og er núna alveg að nálgast hálsmálið. En það sem var eiginlega skemmtilegast af öllu var að hver og ein var með litla kennslustund:

  • T kenndi okkur að gera brenndar möndlur eins og hægt er að kaupa í Tivolí í Kaupinhöfn,
  • E kenndi okkur línudans
  • D kenndi okkur að affrysta frystinn með hárþurrku
  • Ég kenndi þeim að þæfa jólakúlur og brjóta Origami fugla
  • GM kenndi spilagaldur
  • G kenndi hvernig hægt er að opna flöskur með lykli
  • K kenndi okkur að opna flösku með annarri flösku
  • I kenndi okkur nýja vísu með Gammel Dansk
  • B kenndi okkur klappleik sem heitir Spanski lás
  • BJ kenndi okkur að elda kerti og skera mangó án þess að verða útbíuð
  • AG kenndi okkur að drekka Breezer á innan við mínútu
  • Man ekki alveg hver kenndi okkur að nota sítrónudropa til að ná af límklístri
Aðalatriðið var auðvitað að kúpla sig frá hversdagsleikanum, njóta félagsskapar góðra vina og sleppa aðeins fram af sér beislinu. Sem tókst btw!
Á mánudagskvöldið fórum við AG svo á sykurmassanámskeið í veisluturninum sem www.mommur.is halda. Við AG mössuðum þetta sko alveg eða allavega AG, það kom í ljós að hæfileikar hennar liggja sko algjörlega þarna.
Svona leit kakan mín út og .....
... svo bakaði ég þessa daginn eftir til að fara með í miðvikudagskaffið í vinnunni.
Alltaf nóg að gera hjá unglingnum, nú er hún að leika í sýningu með leikfélagi Borgarholtsskóla, sýningin heitir "beatlejuice" og er sýnd á Norðurpólnum sem er staðsettur á Seltjarnarnesi, sem er 15,5 km frá heimili okkar. Þetta veit ég því ég hef þurft að sækja og skutla nokkrum sinnum sem ég tel auðvitað ekki eftir mér fyrir frumburðinn en nú á tímum ógurlegs bensínverðs er þetta nokkuð kostnaðarsamt fyrirtæki.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

þurftiru þá að koma með annað matarblogg ;)
flottar sykurmassakökurnar - hvenær ætlarðu að kenna mér þetta og líka að laga bloggið mitt svona fínt ha?

frugalin sagði...

hahaha já auðvitað! Þú þarft líka að kenna mér að gera franskar makkarónur, langar mikið að læra það, svo lekkerar kökur.

Förum endilega að hittast til að gera eitthvað skemmtilegt, það er nú lítið mál að flikka aðeins upp á bloggið þitt, segðu mér bara hvað þú vilt og ég geri það strax.

Related Posts with Thumbnails