30. maí 2011

Lífið er of stutt til að vera í leiðinlegum fötum

Fyrr í vetur keypti ég þennan langermabol í Vero Moda með það fyrir augum að breyta honum eins og Sachiko í Tea Rose Home gerir. Í kvöld kom ég mér loksins að verki, klippti ermarnar af og notaði til að skreyta.
Ermarnar klippti ég svo í ræmur eftir að ég hafði opnað þær og klippt alla sauma af.
Planið var að gera nokkrar rósir og nokkrar rendur með rykkingum. Ég fékk 8 lengjur úr ermunum.
Ég byrjaði á því að rykkja nokkrar lengjur með stóru spori á saumavélinni.
Ég saumaði fyrst rykktu lengjurnar, sneri svo upp á 5 lengjur og bjó til rósir. Lengjurnar saumaði ég á með mjóu, gisnu sikksakki. Rósirnar lagði ég á og festi með títiprjónum og saumaði síðan yfir tvær umferðir með beinu spori.
Bara ánægð með þetta, kemur vel út, sérstaklega þegar maður dregur inn magann fyrir myndatökuna.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Æðislegur bolur Jóhanna hann kemur vel út :)

kv
Þuríður Svava

Nafnlaus sagði...

Frábært :)
Góða ferð til Spánar mín kæra og takk fyrir innlitið í dag - alltaf gaman að hitta þig :)

Related Posts with Thumbnails