16. janúar 2012

Merci


Frúin er búin að skrá sig á frönskunámskeið sem hefst í kvöld hjá Alliance francaise. Ástæðan fyrir þessu málanámi mínu er auðvitað áhugi minn en líka það að heimasætan er að byrja í frönsku í framhaldsskólanum sínum og því finnst mér upplagt að við lærum þetta saman frá byrjun.
Eins og þetta sé nú ekki nóg er frúin líka í einum áfanga í dreifnáminu sem hefur mallað hægt og rólega undanfarin ár og sér nú fyrir endann á. Mín útskrifast jafnvel í vor!
Planið er að taka ræktina með trompi, mín er komin með kort í World Class og ákveðin í því að verða ekki styrktaraðili heldur virkur meðlimur.
Önnin klárast svo með gönguferð um Toscana með grasa- og sælkeraívafi með góðri vinkonu. Það er því ljóst að mér á ekki eftir að leiðast næstu mánuðina frekar en fyrri daginn

Á kantinum bíður bloggfærsla um handavinnu en ég kláraði loksins prjónaveskið mitt um daginn og svo fékk ég undurfagra heklaða ljósaseríu frá bestu systur í afmælisgjöf. Verð að gefa mér tíma til að mynda herlegheitin.

1 ummæli:

e sagði...

BIG LÆK á frönskunámið. Fyndið var einmitt að skoða frönskunámskeið fyrir 2 dögum síðan hahaha - sko til að geta talað við "litlu systur" í framtíðinni ;)
Jebb mín líka með líkamsræktarkort en var styrktaraðili í síðustu viku vegna rófunnar ehemm. Ætla hægt af stað í þessari viku - vonandi að ég nái nú einhverjum framförum í rófumálum fljótlega.
Hlakka MJÖG mikið til í gönguferðinni í vor :D

Related Posts with Thumbnails