Við byrjuðum að taka herbergi sætu spætunnar í gegn um páskana. Ég var nú smá upptekin við að klára margmiðlunarnámið þannig að ég kláraði ekki að mála húsgögnin fyrr en núna í vikunni. Við seldum Tromsö háa rúmið hennar með skrifborði undir og keyptum krúttlegt hvítt Ikea járnrúm í staðinn og gamalt furuskrifborð.
Sú sæta vildi endilega mála skrifborðið fjólublátt en þar sem mér finnst fjólublátt vera ljótasti litur í heimi, sagði ég við hana að það væri of mikil vinna að mála skrifborðið upp á nýtt þegar hún fengi leið á fjólubláa litnum og sagðist ætla að mála litlu skúffurnar fjólubláar og keypti svo krúttlegar höldur í Snúðum og snældu.
Ég verð nú að segja að þrátt fyrir fjólubláa litinn þá finnst mér þetta bara vel heppnað makeover. Og ekki nóg með það heldur var þetta svolítið grænt makeover þar sem við keyptum "nýju" húsgögnin notuð. Við komum nokkurn vegin út á sléttu svo ekki er hægt að kvarta yfir kostnaði.










6 ummæli:
Flott hjá þér...hvaða málningu ertu að nota á furuna??
Ég notaði bara venjulega veggjamálningu á hilluna, en ég gerði ráð fyrir að ég þyrfti eitthvað öflugra fyrir skrifborðið og keypti grunn og Lady lakk í húsasmiðjunni sem afgreiðslumaðurinn lofaði að ég gæti notað svo á gluggakarmana hjá mér ef það væri afgangur.
Kv
Frú Galin
Ótrúlega flott makover á skrifborðinu....og mér finnst fjólublái liturinn ÆÐI ;-)
kv
Kristin V
Tek undir með hinum, virkilega vel gert og borðið eins og nýtt eftir yfirhalninguna. Fallegt herbergi sem heimasætan hefur.
Flott borð!
Langar að vita hvar þú fékkst hvítu hilluna sem er hliðiná skrifborðinu? :)
Mig minnir að hillan sé úr Rúmfatalagernum en það eru örugglega 10 - 15 ár síðan ég keypti hana. Hún var bara úr ómeðhöndlaðri furu þegar ég keypti hana og ég málaði hana með venjulegri veggjamálningu.
Skrifa ummæli