Þriðja og næstsíðasta helgi fyrir jól er búin, samt finnst mér eiginlega að næsta helgi sé jólahelgin, hálfgert svindl þegar jólin lenda svona alveg ofan í helginni. En við fórum af stað með metnaðarfulla dagskrá í gærmorgun þar sem við höfum bara tekið því rólega hingað til, horft á sjónvarpið út í eitt og svoleiðis huggulegheit. Ég hef bara ekki haft orku í meira því nemendur mínir eru orðnir svo spenntir að bíða eftir jólunum að öll mín orka fer í að halda skipulaginu og passa að ekki fari allt úr böndunum. Með góðri hjálp heimilismanna tæmdist listinn næstum því, aðeins tvö atriði eftir í tiltekt og ég náði ekki að fara út í búð. Sæta spætan og ég vorum einar heima á laugardagskvöldið og ákváðum að baka eina smákökusort. Ohh það er svo gott að fá svona gæðastundir með börnunum sínum.
Fjúff, löng og ströng helgi að baki og þá eru bara fjórir kennsludagar eftir!!! Á morgun eru svo tónleikar unglingsins og síðasti tíminn í frönsku. Örfáar jólagjafir eftir en ég er búin að ákveða hvað það á að vera að mestu svo það þarf bara að sækja.
3 ummæli:
ég svitna bara frú galin.........þvílíkur dugnaður
knús frá hinumegin við hafið
Sem betur fer gerði ég þetta ekki allt ein.
Knús til baka
Hvað varð um fjórðu helgina í aðventu?
Kv. frá mér sem langar alveg í einn góðan kaffibolla með þér - á hann inni næst þegar ég stíg fæti á íslensku jörðina :)
Skrifa ummæli