Þá eru tveir af fimm stofugluggum orðnir fínir og flottir. Nú er bara að bíða eftir að hlýni aðeins í veðri svo hægt sé að mála gluggana með opnanlegu fögunum.
Stofan var tekin í vorhreingerningu fyrst ég var að þessu veseni á annað borð. Húsgögn voru færð til og skúrað út í öll horn.
Svo mikill munur, get ekki beðið eftir að allir gluggarnir verði svona fínir.




1 ummæli:
Engin smá munur á gluggunum svona hvítum og fínum. Stóri glugginn er alveg dásamlegur og nýtur sín svo vel svona. Hlakka til að sjá meira af þeim ;
hafðu það gott
kær kveðja
Stína sæm
Skrifa ummæli