4. janúar 2016

Nýtt ár - ný tækifæri



Hálft ár frá síðustu færslu og nýtt ár gengið í garð. Nýtt ár með nýjum tækifærum, gleði og hamingju. Ég verð nú að segja að ég var pínu stressuð fyrir hátíðirnar, hvernig allt myndi ganga fyrir sig þegar allt fjölskylduplanið var breytt en mér til ánægju og yndisauka voru þetta stresslausustu og yndislegustu jól sem ég hef átt síðan ég veit ekki hvenær. Jólaboðunum fækkaði hjá mér og meiri tími var til að njóta þess að vera í fríi og gera það sem mig langaði.

Árið framundan er fullt af spennandi fyrirheitum, skíðaferð í febrúar, stelpuferð í mars, ættarmót í sumar, og svo auðvitað allt þetta litla dagsdaglega sem er ótrúlega mikilvægt líka. Ég ákvað að gera svona krukku eins og ég hef séð á Pinterest, þar sem maður skrifar á litla miða yfir árið allt það góða og skemmtilega sem hefur gerst á árinu og svo þegar árinu lýkur er krukkan opnuð og minningarnar rifjaðar upp.

Megi nýja árið verða dásamlegt og fallegt.

1 ummæli:

elin sagði...

Znilld. Gerði einu sinni svona krukku :) Spurning um að gera eina nýja núna. Held það bararassasta að ég geri það.
Knús og kossar yfir hafið,
e

Related Posts with Thumbnails