30. ágúst 2007

Trúnaðarmaður ;-)

Já, já það er satt, mín er orðinn trúnaðarmaður fyrir kennarana í Engjaskóla. Fyrst fundurinn er á morgun. Við Elín, varatrúnó, förum saman í fyrramálið kl. 9 - 11. Ég held þetta verði ágætt. Einar sagðist myndi hjálpa til við að dreifa blöðum ef ég tæki þetta að mér, ég ætla að taka hann á orðinu og demba á hann Skólavörðunni í fyrramálið, hehe.
Guðný, Svala, Ingibjörg og ég fórum á kynningu fyrir handavinnukennara í Föndru í kvöld. Maður gæti nú alveg gleymt sér þarna í nokkra daga! Ég keypti mér pappír til að föndra tölustafi úr til að hafa í stærðfræðistofunni minni. Ég ætla að gera talnarunu frá 1 - 20 og jafnvel hærra og setja svo hring undir prímtölurnar. Mér finnst þetta svo frábært kerfi sem við vorum að taka upp í vetur með að faggreinaskipta kennslunni, þetta er miklu léttara og nú get ég gert allt mögulegt til að gera kennsluna meira líflega og skemmtilega því ég hef svo mikinn tíma.
Á morgun verður svo fyrsta partýið, jibbý.
Hið árlega golfmót fjölskyldunnar hans Sigga verður svo á laugardaginn, byrjar kl. 4 og endar svo á partýi, sem verður víst haldið heima hjá okkur ef ég hef skilið Sigga rétt.
Ég er búin að fá bókalista fyrir íslenskunámið mitt, en veit samt ekki ennþá hvenær það byrjar. Ég þarf endilega að muna að senda kennaranum póst og spyrja nánar út í þetta fjarnám.
Siggi ætlar líka að drífa sig í nám. Það er boðið upp á rafvirkjanám fyrir vélstjóra, aðeins 9 einingar í viðbót og þá er maðurinn orðinn rafvirki. Hann tekur 5 einingar í fjarnámi á haustönn og 4 á vorönn og byrjar á laugardaginn. Þetta verður upptekin fjölskylda í vetur!
Ólöf mín er byrjuð í skólanum og það hefur gengið mjög vel, en ekki eins vel að koma henni í gæsluna. Ég klikkaði auðvitað á því að byrja að tala um gæsluna um leið og ég byrjaði að tala um skólann í febrúar til að venja hana við tilhugsuninni. Það er ekki eðlilegt hvað hún á erfitt með að venjast nýjum aðstæðum. En nú er þetta allt komið held ég, hún fór allavega í gæsluna bæði fyrir og eftir skóla í dag. Ég sótti hana svo snemma í dag og við fórum aðeins í heimsókn á leikskólann. Hún var nú hálf feimin að koma þarna inn aftur eftir svona langt hlé.

2 ummæli:

Guðný sagði...

Hver er þessi eduardo waghorn????????

frugalin sagði...

Mér tókst að eyða honum út. Creapy guy :-/

Related Posts with Thumbnails