24. október 2007

brjáluð vika

Við komum heim frá Búdapest kl. hálfsex í gærmorgun. Ég ákvað að fara ekkert að sofa (þá hefði ég örugglega sofið til hádegis), las bara blöðin, borðaði morgunmat, skoðaði tölvupóstinn og gekk frá úr töskunni áður en ég fór í vinnuna. Þriðjudagar eru lengstu dagarnir mínir, 7 kennslustundir í röð, en ég var búin að panta "vísindamann að láni" þennan dag, algjör snilld. Vísindamaðurinn minn, Hafrún, rafmagnsverkfræðingur, kom kl. 10:30 og var með skemmtilegan fyrirlestu x 4. Þ.e. ég gat platað hana til að halda fyrirlesturinn fyrir alla 4 hópana mína í stærðfræði. = Rólegur tími fyrir mig. Ég fór heim um kl. hálf fjögur, hélt áfram að vinna í tölvunni til rúmlega átta og var sofnuð um hálftíu. Ekkert svo erfiður dagur.

Var á fullu í dag að undirbúa foreldraviðtölin á morgun. Var í vinnunni til hálfsex og náði að klára allt fyrir morgundaginn nema setja fyrir heimavinnu fyrir næstu viku, geri það á eftir.

Síminn hringdi hérna þegar ég var á leiðinni út í búð eftir að hafa farið með Ólöfu í fimleika kl. sex. Í símanum var einhver strákur sem talaði bara fr....ísku, ég skildi ekki nema helminginn af því sem hann sagði og samt er ég nokkuð góð í fr....ísku (talaði heillengi við Fr... í dag og skildi næstum allt). Ég held að strákurinn hafi verið að reyna að selja mér áskrift af lottói. Þoli ekki óskýrmælt símasölufólk ... arg

Annað sem ég þoli ekki er þegar maður bíður eftir töskunum á flugvöllum. Flestir raða sér svo þétt upp við færibandið að það er ekki nokkur leið að komast að bandinu ef maður sér töskuna sína. Er að spá í að mæta með gult límband næst þegar ég fer til útlanda og líma hringinn í kringum bandið í svona meters fjarlægð og skrifa: standið hér á meðan þið bíðið eftir töskunum.

Þoli ekki heldur matreiðsluþætti í sjónvarpinu, allt svo auðvelt og einfalt ... þetta er ekki hægt í alvörunni!

Jæja nú er ég hætt að vera pirraða Barbie

Ég ætla að reyna að láta Þórunni og Sunnu passa Ólöfu í fyrramálið á meðan ég er með viðtölin, vonandi sofa þær bara út, horfa á eina mynd og rífast ekkert áður en ég kem heim kl. 1. Þetta er samt algjört happdrætti.

En nú er komið að því að vinna upp í íslenskunámskeiðinu, á eftir að hlusta á 2 fyrirlestra og lesa eitthvað líka áður en við hittumst á morgun til að fara yfir næsta verkefni sem á að skila á morgun.
Svona hættu nú að blogga stelpa!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

auðvitað gerir ÞSK flott kort handa bestasta kennaranum sínum ;)

Related Posts with Thumbnails