10. október 2007

Snilldarormur

Það er ekkert smá rólegt hér heima á kvöldin núna. Elín gaf mér ljósrit af æfingaorminum sem sonur hennar fékk í fiðlutíma. Nú er Ólöf farin að passa upp á klukkuna á kvöldin, hún á að lesa, hátta og bursta tennurnar fyrir kl. 8 og þá má hún gefa orminum að borða. Og hún er svo ánægð og stolt af sjálfri sér. Það er ekki einu sinni búið að bjóða henni einhver verðlaun, henni finnst bara æðislegt að fá að setja límmiðafrosk í magann á orminum. Eins og ég segi - hreinasta snilld.

Það eru alltaf skemmtilegar umræður á kaffistofunni, í dag vorum við Elín að ræða um að sækja um aðra vinnu, vera svona leiðbeinandi á undanþágu (eins og í grunnskólunum). Mig langar að vera byggingaverkfræðingur, ég hef mikla reynslu af byggingum, ég hef búið í húsi alla mína æfi, ég hef tekið þátt í að byggja 3 hús, tvö þegar ég var krakki og svo húsið sem við búum í núna. Ég veit alveg hvernig hús á að líta út svo ég held bara að ég væri svolítið góð í þessu. Elín ætlar að verða tannlæknir, hún hefur burstað tennurnar í sjálfri sér og 3 sonum sínum, hún hefur oft farið til tannlæknis og getur örugglega lært að nota loftsprautuna o.fl. tól.

Siggi er bara í bílskúrnum þessa dagana að setja samlæsingar í jeppann og Þórunn nennir ekkert að gera í skólanum og þarf því að eyða öllum kvöldum í heimalærdóm. Sem sagt - bara rólegt hjá mér.

Kveðja
Pæjan á hælaskónum

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hihi sá þig sko á hælunum - aaaaalgjör pæja
þú mátt alveg byggja ofan á húsið mitt á undanþágu ;)

Guðný sagði...

Undanþágu hvað ha!!! Ég skil ekki alveg enda er ég í félaginu "Einar" og finnst ég svolítið útundan íumræðunni, ég gæti alveg ýmislegt gert, ég gæti t.d. alveg verið verðbréfasali, ég átti einu sinni verðbréf (í þá gömlu góðu daga) og ég seldi þau og kann það alveg, svo vann ég í banka í 4 sumur og kann alveg að fara í tölvurnar þar og afgreiða tékkhefti.... eða eru þau dauð???? dí er ég orðin svona gömul???

Nafnlaus sagði...

Er þetta ekki bara aldurinn hjá dömunni þinni að nenna engu í skólanum? Ég þarf að hafa mig allan við að fylgjast með minni dömu og svo vonar maður bara það besta að hún sé að standa sig.

Kv. :)

Nafnlaus sagði...

Guðný - AUÐVITAÐ þú verður bara bankastjóri á undanþágu :) enda með MIKLA reynslu í bankamálum.

Related Posts with Thumbnails