21. júní 2008
Flutningar - dagur 2
Jæja þá er dagur 2 í flutningunum liðinn. Í dag hefur heilmikið gerst, Siggi er búinn að fjölga tenglum í nýja vinnuherberginu svo um munar, bætti við 9 tenglum og færði símadósina. Okkur vantar bara einn þrefaldan ramma utan um tenglana og þá er rafmagnsvinnan búin. Seinni partinn byrjaði ég svo að flytja inn í herbergið.
Svona lítur stofan okkar út núna. Ólöf er sofandi þarna í rúminu í miðri hrúgunni. Það sést meira að segja ekki allt því öll fötin hennar eru í sófanum sem sést ekki vinstra megin.
Vinnuherbergið sem er tilvonandi herbergi Ólafar er næstum orðið tómt.
Nýja vinnuherbergið er farið að taka á sig mynd. Ég er að reyna að hafa það aðeins krúttlegra en það gamla. Veit ekki hvort það tekst því það er ennþá hellingur eftir af dóti sem ég veit ekki alveg hvað ég á að gera við. Sennilega er besta lausnin að kaupa krúttlega kassa sem passa á efstu hilluna og koma því þannig fyrir.
kl.
22:59
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
znilldarhugmynd hjá ykkur :) - og jamms ég hef komið inn í gamla vinnuherbergið þannig að ég veit að þar er MIKIÐ af dóti hihi
knúsar
Skrifa ummæli