14. september 2008

Skemmtileg verkefni

Var að vinna í gær og í kvöld að verkefnum í BHS. Hér eru tvær myndir sem ég á að skila í næstu viku í MHL kúrsinum mínum. Við erum að byrja í myndvinnslu. Þetta er rosa skemmtilegt og ég vona að ég læri alveg helling.

3 ummæli:

Guðný sagði...

bíddu bíddu á að nota mig og mína bumbu í verkefni í skólanum? Ætlarðu að sýna öllum bumbuna? Geturðu ekki fotoshoppað mig aðeins fallegri og grennri og betur strípaðri um hárið??

frugalin sagði...

hahaha jú dúllan mín það get ég auðveldlega.
Myndin er hins vegar í svo lítilli upplausn að það er spurning hvort nokkur þekkir þig.

Nafnlaus sagði...

Hæ. :)
Mikið eru þið systurnar líkar í útliti, við fyrstu sýn, svona snögglega á litið, hélt ég að myndirnar væru af þér Jóhanna en þú ert ekki bomm svo það gat auðvitað ekki verið. :)
Gangi þér sem allra best í náminu og gangi systur þinni sem allra best líka.

Kv, Nína M :)

Related Posts with Thumbnails