- Örfá tilfelli af lús í vetur í skólanum vegna færri utanlandsferða
- Siðferði almenning og ráðamanna batnar vonandi
- Ungt fólk þarf að standa sig í vinnu vegna atvinnuleysis, vonandi smitar það inn í unglingadeildir grunnskóla og fólk fer að sinna náminu betur.
Þarf aðeins að hugsa málið, örugglega fleiri atriði, eða hvað?
1 ummæli:
Sæl Jóhanna. :)
Já, ég er svo hjartanlega sammála þér, hugsaði það sama með lúsina, færri fara erlendis þannig að færri tilfelli af lúsinni koma til baka. :)
Veit ekki með siðferði almennings og stjórnvalda, finnst fólk vera svolítið að tapa sér í neikvæðni og geðköstum þessa daganna og virðist sem stjórnmálamenn eru lítið og ekkert að gera okkur almenningi til heilla.
Það er lán í óláni með að yngra fólkið þurfi að standa sig betur í vinnu núna til að eiga raunhæfa möguleika á atvinnu í náinni framtíð og ef þessi hugsunarháttur smitist yfir á börn, unglinga og unga fólkið í skólunum þá er það frábært.
Hafðu það sem best,
kær kveðja, Nína Margrét :)
Skrifa ummæli