Ólöf fór með mér á prjónakaffi á laugardagsmorguninn. Hún bað mig að prjóna á sig vettlinga. Ég spurði auðvitað hvernig vettlinga viltu? Hún lýsti þeim í smáatriðum og valdi sér garn og ég prjónaði svo vettlingana um helgina. Ég hafði nú vit á því að taka mynd af þeim áður en hún fór með þá í skólann sem var eins gott, því í dag, þremur dögum seinna, týndist annar vettlingurinn!
2 ummæli:
Ætli úttlenska lúsin hafi nokkuð tekið vettlinginn - þær hafa þá þurft að vera nokkuð margar lúsirnar þar sem vettlingurinn er svo stórustelpulegur ;)
knúsar
e
Skemmtilegir vettlingar hjá Ólöfu, hún á nú ekki langt að sækja hönnunar hæfileikanna. :)
Kær kveðja, Nína M :)
Skrifa ummæli