Ég er búin að vera að lesa blogsíður síðustu daga. Ég hef verið að kynna mér lífsstíl sem kallast frugality, það þýðir að láta sér nægja lítið, eyða litlu, nýta vel það sem maður á og ekki síst að henda ekki verðmætum eins og mat.
Hér er smá kynning á þessu frá konu í Frakklandi.
Svo eru hér nokkrar blogsíður sem ég hef lesið:
Frugal girl, My year without spending og Frugal chick.
Hér er myndband um neyslusamfélagið eins og það er núna og hvernig það þróaðist frá ca.1950.
The story of stuff
Ég er alveg til í að einfalda líf mitt og spara fé í leiðinni, en það er fín lína á milli þess að vera hagsýnn eða nískur. Hagsýni er góð en níska er ekki góð. Mér líst best á hugtakið frugalista en það þýðir að vera meðvitaður neytandi, spara á sviðum sem skipta mann litlu máli (eins og að venja sig á að slökkva ljós þar sem enginn er) en velja svo vel það sem maður vill eyða í.
Ég hef aldrei þolað að henda mat, og þeir sem hugsa frugal eru líka á móti því. Matarkostnaður er stærsti útgjaldaliðurinn á þessu heimili og því auðveldast að leita leiða þar til að lækka kostnað.
1 ummæli:
Sæl Jóhanna. :)
Alveg er ég sammála þér með "hagsýnina" ég þoli ekki heldur að henda mat né annað sem er vel nothæft. Er meira að segja búin að fara yfir stílabækur frá því fyrra, rífa fyrstu blaðsíðurnar úr þannig að hægt sé að nota þær aftur í vetur og einnig ýmislegt annað skólatengt hjá krökkunum.
Hér er matarkostnaðurinn vel hár enda erum við 6 í heimili.
Gangi þér vel í "frugalinu"
kær kv. Nína Margrét :)
Skrifa ummæli