Um síðustu helgi fórum við í brúðkaup stjúpdóttur minnar. Dagurinn heppnaðist eins vel og hugsast gat en stjúpdóttir mín var búin að vinna hörðum höndum að því að skipuleggja öll smáatriði, þetta gekk allt saman upp hjá henni og dagurinn varð fallegur og ljúfur. Sæta spætan fékk að vera í smá hlutverki þennan dag og var önnur brúðarmeyjan, hún naut þess út í ystu æsar þó hún hefði nú viljað hafa meiri tíma til að laga hárið.
Stuttu seinna átti svo heimasætan sautjánda afmælisdaginn sinn og fékk hátíðarmorgunverð en deginum var síðan varið heima hjá yngstu frænku en þær deila afmælisdegi. Um kvöldið komu svo vinir hennar í heimsókn og deginum lauk með bíóferð með kærastanum. Heimasætan duglega tók skriflega ökuprófið um daginn og náði því í fyrstu tilraun með glæsibrag. Verklega prófið er svo eftir nokkra daga. Litla barnið mitt er að verða svo stór, ábyrg og fullorðin, glæsileg stúlka sem ég er óendanlega stolt af.

1 ummæli:
yndislegt - til hamingju með þær allar :)
kv. yfir hafið
Skrifa ummæli