Helginni var eytt í góðum félagsskap kátra prjónakvenna á Sólheimum í Grímsnesi. Við vorum 19 flottar konur sem gistum saman í félagsheimilinu Bergheimum sem er rekið af líknarfélaginu Bergmáli. Við náðum að prjóna alveg heilan helling, borða heilan helling, kjafta heilan helling og hvíla okkur vel á þessum yndislega stað. Á laugardagsmorgninum settumst við nokkrar og gerðum prjónamerki, ég náði að gera 38 prjónamerki. Við ákváðum að styrkja líknarfélagið Bergmál með prjónamerkjum sem þær geta svo selt á markaðnum sínum. Ég gaf 4 sett og samtals gáfum við um 20 prjónamerkjasett.
Nú þarf að fara að huga að því að panta bústað fyrir hina árlegu SPK ferð eftir áramótin. Síðustu tvær ferðir hafa verið algjör snilld.

2 ummæli:
já og ef þú pantar með góðum fyrirvara er aldrei að vita nema útlendingurinn geti bara farið með - ha ;)
Það væri nú ekki leiðinlegt að fá útlending í ferðina!
Skrifa ummæli