25. nóvember 2011

Aðventan

Komin í helgarfrí, fyrsti sunnudagur í aðventu innan skamms, laufabrauð og piparkökuskreyting fljótlega og ég ekki byrjuð að baka smákökur, hvað er að gerast? Yfirleitt byrja ég að baka smákökur um miðjan október eða í síðasta lagi í byrjun nóvember. Ég ÆTLA að baka eitthvað um helgina, þessi jólasnjór æpir á bakstur og kósíheit.

Ég held ég hafi aldrei haft eins lítið fyrir aðventukransi og í þetta skiptið, kertin eru úr Söstrene Grene og tölustafirnir einnig, kúlurnar eru úr RL-vöruhúsi og bakkann átti ég uppi í skáp.

1 ummæli:

e sagði...

snjór....úfff....fegin að hann er ekki enn kominn hér ;)
hlakka til að sjá þig eftir smá :D

Related Posts with Thumbnails