13. nóvember 2011

Verslunarferð

Alltaf er nú gott að koma heim aftur. Stórfjölskyldan lagði land undir fót (dekk) og skrapp til Akureyrar í helgarferð þessa helgi. Planið var að versla svolítið, njóta samvista við fjölskylduna og hafa það huggulegt í höfuðstað norðurlands. Við vorum svo heppin að fá alveg hreint yndislegt veður, logn, 6°C hita og úrkomulaust alla helgina. Það var nú líka eins gott því ég er eins veðurhrædd og hægt er að vera, vil alls ekki vera á ferðinni í leiðinlegu veðri eða vita af nokkrum í minni nánustu fjölskydu úti á vegum.

Ég skil nú ekki alveg af hverju norðanfólkið flykkist í stórum stíl suður yfir heiðar eða jafnvel til útlanda. Á Akureyri eru fínustu búðir, veitingastaðir og svo auðvitað Jólagarðurinn við Hrafnagil en þar enduðum við ferðina áður en lagt var af stað í bæinn.

Ég keypti mér dásamleg rauð leðurstígvél fyrir norðan, sæta spætan keypti sér flottan fjólubláan sparibol og svo keyptum við sitt lítið af hverju í viðbót, m.a. krúttlegt jóladagatal sem ég ætla að gera eitthvað sniðugt við.

Ég verð nú samt að enda þessa færslu á væli yfir vegalengdinni sem þurfti að keyra til að gera þessa ferð mögulega. Þetta er nú alveg fáránlega langt, 5 tíma ferðalag hvora leið! Eins gott að maður á ekki erindi þarna norður nema einu sinni til tvisvar á ári.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mér finnst nú lágmark að skella inn mynd af rauðu leðurstígvélunum.....

Ástríður

frugalin sagði...

kem bara í þeim í vinnuna á morgun!

e sagði...

úúúh elska Akureyri og elska Jólahúsið :D

Related Posts with Thumbnails