1. janúar 2012

Nýtt ár, ný tækifæri


Árið 2011 liðið og nýtt ár hafið, fullt af frábærum tækifærum og nýjum fyrirheitum. Eins og venjulega hef ég engin sérstök áramótaheit en ætla, eins og alltaf, að reyna að bæta mig á eins mörgum sviðum og hægt er. Systir mín elskuleg ætlar að reyna sitt besta til að draga mig í ræktina (ég þarf nú alveg á því að halda). Ég ætla líka að standa mig betur í því að standa upp úr sjónvarpsglápinu og framkvæma hlutina (handavinnu, skipulag heimilisins o.fl.) Ég ætla að reyna að vera duglegri að fara í heimsóknir, ég er alveg hrikalega léleg í því. En erfiðasta verkefni þetta árið verður að fá heimilismenn til að taka jafnan þátt í heimilishaldinu. Þetta err eiginlega nauðsynlegt, því ég verð svo grumpy að horfa á skítuga sokka og óhreinar nærbuxur út um allt eða brauðmylsnur á bekknum þegar einhver hefur fengið sér smá snarl. Þetta verður reynt til að bjarga geðheilsu frúarinnar.

1 ummæli:

pollicino sagði...

Hallo.I have visited your interesting blog.Do You want visit the my blog for an exchange visit?Grazie.
http://internapoli-city-2.blogspot.com/
Happy New Year - From Italy

Related Posts with Thumbnails