9. maí 2012

Hrökkbrauð

Ég fékk þessa uppskrift að hrökkbrauði frá Svölu vinkonu minni í haust en kom því aldrei í verk að baka fyrr en núna fyrir nokkrum dögum. Þetta er afskaplega einföld og góð uppskrift, bráðholl auðvitað og fljótleg.
  • 1 dl sólblómafræ
  • 1 dl graskersfræ
  • 1 dl hörfræ
  • 1 dl sesamfræ
  • 1 dl gróft haframjöl
  • 3 1/2 dl heilhveiti/spelt
  • 1 1/4 dl olía
  • 2 dl vatn
  • 2 tsk salt


Öllu blandað saman í skál og hrært í með sleif. Ég set bara eina tsk af salti í deigið og geymi hina til að mylja yfir þegar ég er búin að fletja þetta út.
Deiginu skipt í tvennt og flatt út á milli tveggja bökunarpappíra.
Síðan á að skera í deigið með pizzahníf eða kleinujárni til að fá hrökkbrauðið fallegt í laginu en ég gleymdi því auðvitað í hita leiksins og skar í lengjur í staðinn um leið og þetta kom úr ofninum. Hér set ég hina tsk af saltinu yfir.
Bakað í 200°C heitum ofni í um 20 mínútur.
Fallegt, ekki satt? og bragðgott. Meira að segja sæta spætan sem lætur nú yfirleitt ekkert hollt sleppa inn fyrir sínar varir er æst í þetta hrökkbrauð.

2 ummæli:

Kristín S. Bjarnadóttir sagði...

Takk kærlega fyrir þessa uppskrift, ég er lengi búin að vera á leiðinni að prófa að baka hrökkbrauð, nú læt ég verða af því :)

e sagði...

mmmm glæsilegt - ætla að prófa að setja glútenlaust hveitibland í þessa uppskrift og athuga hvort útkoman sé æt ;)

Related Posts with Thumbnails