10. mars 2008

Ný PS færni og kjarasamningaraunir

Ég var að fatta hvernig svona rammar eru gerðir. Maður setur hvítt yfir myndina, notar svo strokleðrið og velur sér form á það og strokar út þetta hvíta þannig að myndin kemur í ljós.
Ég er að vesenast í því núna þessa dagana að fá skólastjórann minn til að fara eftir kjarasamningum. Það er nú meira mál en maður gæti haldið. Þannig er mál með vexti að í grein 2.4.2. í kjarasamningum kennara segir að "ef almannahagsmunir eða öryggissjónarmið ráði megi lengja vinnulotu þannig að 11 tíma hvíld skerðist. Í þeim tilvikum eigi að taka skerðinguna, margfalda með 1,5 og veita þann tímafjölda í frí." Þetta segir skólastjórinn minn að eigi ekki við hjá okkur því það kosti of mikið og ef það ætti að fara eftir þessu gætum við ekki farið í neinar ferðir. ... eins og það komi mér eitthvað við! Hún sagði líka að þetta ákvæði í samningunum væri ekki virt í neinum skóla. Nú er ég þess vegna að safna skólum sem virða þetta ákvæði; ég er komin með 3: Húsaskóla, Fossvogsskóla og Vallaskóla á Selfossi. Ég veit að það var reynt fyrir nokkrum árum að láta skólastjóra Foldaskóla fara eftir þessu, en hann neitaði stöðugt og á endanum gáfust kennararnir upp. Ef þið vitið af fleiri skólum sem virða þetta ákvæði, látið mig endilega vita.
Kveðja frá einni í baráttuham!!!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Skrýtið að skólastjórinn skuli ekki fara eftir kjarasamningum. Þetta er alveg týpískt, er það ekki?
Gangi þér vel með þetta.

Kveðja, Nína M :)

Related Posts with Thumbnails