19. mars 2008

Nóg að gera í páskafríinu

Við systur fórum í dag til að kíkja á búðina hjá E en þá var frúin bara ekki heima (var á snyrtistofunni), þannig að við fórum bara heim aftur. Ég fór svo seinnipartinn og sótti ömmu og afa til að gera skattaskýrsluna þeirra og þau voru í mat hjá okkur.
Ég eyddi mestöllum gærdeginum í að reyna að finna út úr því hvernig ég get notað fínu videocameruna mína sem millistykki til að breyta VHS (analog) hreyfimyndum yfir í digital form þannig að það sé hægt að klippa þær í tölvu. Við eigum nefnilega fullt af videomyndum af Þórunni síðan hún var lítil á VHS spólu. Eeeennn það kom í ljós að þetta er ekki hægt með þeim græjum sem ég á og á ég samt nóg af græjum. Fór líka í gær á fund hjá Fókusfélaginu, það var skiladagur á myndum fyrir sýninguna sem verður í Ráðhúsinu og byrjar í næstu viku. Ólöfu leiddist svo heima í gær að hún fór út í skóla til að leika við krakkana í Brosbæ.

Úúú, já og Etsy taskan kom í dag. Ekkert smá flott, alveg eins og ég var að vona. Ég borgaði 3500 kr fyrir hana með kortinu mínu og svo borgaði ég 1310 kr. í toll, vsk og tollumsýslugjald. Kannski þetta verði upphafið að miklum netviðskiptum af minni hálfu.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ.
Hvar er svo búðin hennar e til húsa? Það væri gaman að sjá hvað hún er að selja. :)

Bestu kveðjur, Nína M :)

Related Posts with Thumbnails