Mmmmm ég keypti mér rísegg frá Freyju. Það er algjört æði.
Við erum búin að fara í tvö matarboð núna fyrir páska. Það fyrra hjá Guðmundi og Þuru á föstudaginn langa, þar fengum við geggjaða humarsúpu að borða, mmmm ég gæti nú alveg lifað á svoleiðis mat. Svo fórum við til tengdó í gærkvöldi, þar var nú ýmislegt gott á boðstólnum, lambakjöt, svínakjöt, graflax og pasta. Ég borðaði bara graflaxinn og pastað, og svo var ís á eftir á báðum stöðum. Á morgun förum við svo í ferminguna hennar Elínar frænku, Eggert ætlar að sjá um matinn svo maður verður nú örugglega ekki svikinn af veitingunum þar.
Við Þórunn ætlum að fara í spæjarahágreiðsluferð þegar bekkurinn hennar fermist þann 6. apríl til að finna út úr því hvernig hárgreiðslu Þórunn vill vera með. Við erum báðar á þeirri línu að hafa þetta einfalt, less is more, eins og Sandra sagði í gær.
1 ummæli:
gleðilega páska :)
ég kaupti bara síríusrjómasúkkulaði og borða það með kaffinu hehe ;)
sniðugt að skella sér í spæjaraferð - ég þarf samt aldrei að fara í svoleiðis þar sem ég á bara stráka og get sparað þennan hluta í burtu hihi
knúsar á línuna
e
Skrifa ummæli