21. apríl 2008
Hjólageymslan ehf
Helgin fór í að undirbúa fyrir fermingu, Siggi kláraði allt í sambandi við bílskúrshurðina, ég þvoði alla glugga, að utan og innan, kláraði stofuna og þreif tölvuherbergið. Þórunn tók sitt herbergi í gegn og byrjaði á Ólafar herbergi. Guðrún og Jóhann voru í heimsókn og voru nýtt í þrifin, allir eldhússtólarnir voru settir út á pall og þau þvoðu eins og þau ættu lífið að leysa. (Þegar ég tók stólana inn var samt eins og þau hefðu vandað sig við að þvo í kringum blettina, hehehe).
Við Þórunn fórum í Föndru á laugardaginn til að finna skraut á kransakökurnar. Við fundum fiðrildalímmiða sem við límdum á pappírinn sem við höfðum keypt til að nota í gestabókinni og gerðum fullt af fiðrildum.
Ég er að hugsa um að stofna fyrirtæki. Það getur heitið Hjólageymslan ehf. Þannig er mál með vexti að við fjögur á heimilinu eigum öll reiðhjól, að auki eiga stelpurnar hlaupahjól og svo er hérna ennþá gamla hjólið hennar Ólafar og þríhjól síðan Þórunn var lítil. En þetta er nú ekki allt því vinkona Þórunnar geymir hjólið sitt oft hérna á meðan hún er í skólanum og bróðir hennar líka, sem væri auðvitað í fínu lagi ef þau færu með hjólin heim eftir skóla! Um helgina voru sem sagt öll okkar hjól hérna á tímabili á pallinum, hjól vinkonunnar og hlaupahjól bróður hennar og eitt hlaupahjól í viðbót sem ég veit ekki alveg hver átti. Samtals 11 hjól og geri aðrir betur.
kl.
20:40
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
frábært - mig vantar einmitt hjólageymslu þegar mín verður rifin - kem með allt stóðið heim til þín - já og líka sleðana 3 ;)
kv.
e
Jamm, ætli ég verði ekki helsti viðskiptavinur "Hjólageymslunar ehf" ;) mig grunar nú að þetta á við unganna mína. Aron hefur orðið fyrir því að hjólinu hans var stolið, nú er háannatíð hjá hjólaþjófunum, óþolandi ómerkilegheit!!!
Þú lætur mig bara vita hvað skuldin er orðin há og ég stofna viðskiptareikning hjá þér.;)
Bestu kveðjur og gangi ykkur vel með fermingarundirbúningin (ég er búin híhíhí)
Kv. Nína M
Gleðilegt sumar Jóhanna og fjölskylda og takk fyrir skemmtilegan bloggvetur.
Gangi ykkur sem best á fermingardag Þórunnar.
Kær kveðja, Nína M :)
Skrifa ummæli