Fór eftir vinnu niður á Skólavörðustíg að skipta rúmfötum sem við fengum í jólagjöf. Þetta voru vönduð og flott rúmföt sem maður á í 10 ár og því ákvað ég að skipta yfir í annan lit sem er klassískari. Kom við í Beco á leiðinni heim, ooohhh það er svo margt sem mig langar í þar:
- Einfótur (eins og þrífótur nema með eina löpp), sá einn sem myndi vera alveg frábær, kostar um 13.000 kr, (photo compact monopod MN680B + haus MN234RC)
- Regnkápa fyrir myndavélina, hefði komið sér vel á laugardaginn var, 2 í pakka á 1.390 kr
- Húdd á 17/85mm linsuna mína, kostar um 4.000 kr.
- Flass, Metz - Mecablitz 58 AF-1 Digital fyrir Canon, kostar 66.500 kr
Ég er orðin svo góður viðskiptavinur hjá Beco að stelpan sem afgreiðir þar gefur mér alltaf súper-mega afslátt, við erum orðnar perluvinkonur. Í dag var alveg troðfull búð og hún passaði upp á að enginn færi fram fyrir mig í röðinni, algjört krútt.
2 ummæli:
og nú þarf frúin bara að taka myndir af öllum hlutunum sem eiga að fara í vefverslunina hjá hinni frúnni hihi ;)
þessi frú og hin frúin þurfa að fara að hittast!
Skrifa ummæli