Ég sló grasið í gær. Takið eftir rósarunnanum mínum við fjarendann á girðingunni.
Fór síðan í Sorpu með:- gras
- dagblöð
- plast
- sléttan pappa
- og bylgjupappa
Svona erum við umhverfisvæn á þessu heimili. Við söfnum líka gleri, rafhlöðum og einnota drykkjarumbúðum. Það var bara ekki kominn tími á að fara með það í gær.

Þetta er rós úr runnanum mínum :-)
Húsmæðraorlofið endaði með hvelli í gær, en þá kom liðið mitt heim frá Ólafsfirði. Það var nú gott að fá þau heim, þó húsmæðraorlofið hafi verið ósköp indælt. Ólöf fór beint til mömmu og gisti þar en Þórunn fékk S vinkonu sína í gistingu til okkar. Þær voru nú svo "elskulegar" að stinga af út um miðnætti með stæl eða með öðrum orðum út um gluggann og komu svo heim aftur um hálftvö. Ég gómaði þær þegar þær skriðu inn um gluggann aftur og þær voru heldur lúpulegar í dag, hehehe.
1 ummæli:
Þetta er mjög falleg rós sem þið hafið í garðinum og dugnaður í endurvinnslunni hjá ykkur. Þórunn er nú meiri unglingurinn að stelast svona út.
kv Þuríður Svava
Skrifa ummæli