Ég kláraði þessa peysu á Ólöfu um síðustu helgi og setti rennilásinn í á mánudaginn. Þann dag fékk ég líka sterakrem við exeminu sem ég fæ alltaf í kringum augun þegar ég prjóna úr lopa og er öll skrárri. Nú er ég búin að fitja upp í peysu á mig en svo lofaði ég lækninum að hætta að prjóna úr lopa þegar hún væri búin. Það er óþolandi að vera með ofnæmi fyrir einhverju sem maður hefur gaman af að gera.
4 ummæli:
flott stelpa í flottri peysu, ég verð bara að prjóna þessa peysu fyrir þig. við gætum gert vinnuskipti ég prjóna og þú saumar bleiur. Þú ert ekkert með ofnæmi fyrir saumavélinni er það??
neibb ekkert ofnæmi fyrir saumavélum :-)
Flott peysa Frú Galin :)
Kv. úr smáíbúðahverfinu
Sæl frú Galin!
Sæt peysa hjá þér!
Var einmitt að velta fyrir mér að prjóna bláklukkupeysuna á mína dóttur sem er í 3. bekk og vil hafa hana opna eins og þú ... hneppta þó. Nú er uppskriftin stærst fyrir 5-6 ára ... stækkaðir þú uppskriftina bara um eitt mynstur eða svo? Hún er líka með A sniði í blaðinu, slepptir þú því og hafði hana beina? Og eins með að hafa hana opna varðandi mynstrið ... skelltir þú bara inn tveimur brugðnum lykkjum í miðju?
Bestu þakkir og prjónakveðjur frá Akureyri,
Linda.
Skrifa ummæli