Nú árið er liðið (eða næstum því) og tími til komin að senda síðasta bloggið út á þessu ári. Jólin liðu í rólegheitum með góðu fólki og góðum mat, alveg eins og lög gera ráð fyrir. Við fengum margar fallegar gjafir og þökkum kærlega fyrir okkur.
Við gáfum Tinna engan pakka en pössuðum að hann fengi langa og góða göngutúra þessa jóladaga og svo fékk hann auðvitað að smakka á jólasteikinni, bæði kalkún og hangikjöti sem honum leiddist nú ekki. Hann fékk samt tvo pakka, báðir innihéldu þeir góðgæti sem hann var mjög spenntur fyrir.
Þetta var svipurinn á sætu spætunni þegar hún opnaði pakkann frá okkur og augnabliki síðar var ég í kremjuknúsi með myndavélina fasta við andlitið.
Á jóladag fórum við til tengdafjölskyldu minnar í jólaboð og hittum alla ættingjana, borðuðum góðan mat og hlógum og skemmtum okkur. Á annan í jólum var svo jólaboðið hjá minni fjölskyldu og sagan endurtók sig, góður matur og góður félagsskapur.
Inn á milli jólaboða, skemmtana og huggulegheita þarf svo að þrífa og taka til (lesist sópa hundahár). Það er því viðeigandi að hundkvikyndið stilli sér upp við ryksuguna hehehe.





3 ummæli:
Gleðilegt árið mín kæra. Hlakka til að hitta þig á nýju ári - þarf smá kennslu á nýju myndavélina ehe ;)
Sé það að Tinni fer að vera leikhæfur með gleraugnaætunni.
Knúsar á línuna.
OMG fékkstu 550 vélina? og hvaða linsu??? Jáhá ég skal sko hjálpa þér með vélina.
Knús til baka og hittumst fljótlega
Fékk standard auto linsuna.....
Skrifa ummæli