19. febrúar 2011

Garn í peysu

Við systur fórum á prjónakaffi í morgun og keyptum okkur báðar heilan helling af dásamlegu garni. Við ætlum báðar að prjóna okkur peysu, meira að segja með sömu uppskriftinni! En þær verða samt ekkert eins því við völdum gjörólíka liti. Garnið heitir Tvinni Tweed og (2) bæði frá Isager. Annað er hrein ull en hitt er blanda af ull og alpaca. Það verður sko fitjað upp á nokkrum lykkjum í kvöld það get ég sagt :)

Nammifríið mitt í febrúar gengur bara vel, ég hef staðist allar freistingar hingað til (það er nú kominn 19.) svo ég á nú örugglega eftir að halda þetta út. Það var samt soldið erfitt eftir síðustu helgi því herra Galinn fékk nefnilega konfektkassa í afmælisgjöf og opnaði hann en ég stóð föst á mínu og fékk mér ekki.

Engin ummæli:

Related Posts with Thumbnails