Í síðustu viku fékk ég lánaðan myndvarpa í skólanum til að framkvæma leynitrikkið á nýja myndavegginn. Fattaði það eftirá að það hefði verið mikið auðveldara að fá skjávarpann lánaðann sem ég er með í stofunni minn.
Ólöf hjálpaði auðvitað til að mála og stóð sig mjög vel í þessu vandaverki.
Byrjuð að raða myndarömmunum niður til að negla á vegginn, búnar að mála.
Ég veit að það er flottara að nota vinil límmiða en þessi leið er ódýrari og minna vesen en að finna einhvern til að búa til límmiðana fyrir sig.
Myndirnar á leiðinni upp á vegg, Ólöf hjálpar til.
Þetta smákemur.
Allir rammarnir komnir upp, vantar samt myndir í suma þeirra. Ég er nú alveg með á hreinu hvaða myndir eiga að fara í suma rammana en þarf að sjá til með aðra.
Og svo ein mynd í lokin af veggnum eins og hann var í byrjun. Ég er bara mjög ánægð með þetta fyrsta "project restyle" verkefni ársins 2011.
Ég hef ákveðið að fara í nammifrí í febrúar, er að vonast eftir því að standast það. Því fleiri sem ég segi frá því, því meiri þrýstingur.








5 ummæli:
enginn þrýstingur frá mér varðandi nammið...er algjör sökker þegar kemur að sælgæti og má svo ekki borða það sjálf skamm skamm....
veggurinn er gordjöss....hvenær má ég koma í "fallegt" kaffi ;)
Þú veist að þú ert alltaf velkomin, mánudagar eru auðveldastir í framkvæmd, hlakka til að fá þig og jafnvel hundkvikyndið líka.
´Hæ
Veggurinn er bara hreint út sagt glæsilegur og kemur mjög skemmtilega út. ´Mér finnst orðin Heima er best gefa veggnum extra touch :)
kv
Þuríður Svava
I can't read your blog but I love your picture wall!!
:)
I can't read it either but that is one beautiful collage wall. Great job!
Skrifa ummæli